<$BlogRSDURL$>
Lýðræðisrýnar
Tuesday, March 31, 2009
  Varðhundar tóku púlsinn á inspectorsframbjóðendum eftir magnþrungnar kappræður niðri í cösu í dag. Þetta voru þó ekki beint kappræður, heldur meira svona Q&A, eða allavega Q og stundum A. Fyrst ræddum við við Árna Frey og spurðum hann hvað honum fannst.

Árni: Jú, mér fannst þetta bara gaman. Góðar spurningar. Hvet alla til að benda á allt sem ég klúðraði í þessum kappræðum á skittuyfirarna@gmail.com. Maður verður nú að fá að vita hvað fór úrskeiðis og þannig. En annars er ég bara kátur. Góðar spurningar.

Varðhundur: Heldurðu að þessar kappræður munu hafa mikil áhrif á kjósendur?

Á: Tja, kappræðurnar hjá Gísla og Sindra höfðu auðvitað mikil áhrif í fyrra þannig að það er spurning. Ég er samt ekkert eins og Gísli svo það sé á hreinu. ÉG ER EKKERT EINS OG GILLI BILLI.

V: Allt í lagi, nú sagðist þú ætla að taka að þér inspectorslaun, finnst þér það í lagi?

Á: Tja, ég meina Gísli gerði það í fyrra og enginn kvartaði. Annars er ég ekkert eins og hann, svo ég veit ekki.

V: Finnst þér það að taka að þér inspectorslaun ekki ganga á skjön við það að þú talar um að nýta skuli peningana sem allra best vegna efnahagsástandsins?

Á: Jú, það er vissulega rétt en ég hef fundið frábæra hljómsveit sem er reiðubúin að spila á árshátíðinni algjörlega frítt og mun það spara ófáar krónurnar með tilliti til ástandsins. Hún heitir Detention Boyz.

V: Í bæklingi þínum lofarðu bættri undirfélagastarfsemi, hvernig fékkstu þessa hugmynd?

Á: Satt að segja, þá kom hún til mín í draumi.

V: Þakka þér fyrir og gangi þér vel.

Á: Takk, hey, værirðu til í að setja hástafi þar sem ég segist ekkert vera eins og Gilli Billi?

Við spjölluðum að sjálfsögðu líka við Halldór og spurðum hann hvernig honum liði með kappræðurnar.

Halldór: Róbert Már Runólfsson gerði mig dálítið skelkaðan á tímabili annars er ég mjög sáttur með mína frammistöðu.

Varðhundur: Í bæklingnum talar þú um að hver nemandi ætti að fá 3 Sveinbjargarmyndir, hvers vegna telur þú það mikilvægt?

H: Sko, þetta er innsláttarvilla. Það á að standa “13”. Ég sýni hversu nett það er að hafa 13 myndir af sjálfum sér í bæklingnum. Ég meina, hversu margar myndir er Árni með af sér? Tvær? Það verður enginn inspector með bara tvær myndir af sér.

V: Í bæklingi þínum segirðu að þú sért stundum kallaður Prins hagræðingarinnar, hvaðan kemur þetta heiti?

H: Frá besta vini mínum, Daða Helgasyni.

V: Þegar þú varst spurður út í Le Futur þá vildirðu bíða með að svara því, af hverju?

H: Sko, ég skal lengi tala um Le Futur, það er minnsta málið. Það er ekkert vandamál fyrir mig, eðli málsins samkvæmt, að öllu leyti, þegar allt kemur til alls.

V: Uhh ókei… fannst þér verið heiðarlega komið fram við nemendur að markaðsetja hljómsveit á falskan hátt?

H: Sko, málið með Le Futur er að ég ætla að flytja inn Slagsmålsklubben á næsta ári.

V: Ég spyr þig aftur, fannst þér þetta heiðarlegt?

H: Le Futur er hljómsveit.

V: *dæsir* Þakka þér fyrir og gangi þér vel.

H: Nei, þakka þér.

Varðhundar hvetja alla til þess að mæta niður í cösu á morgun en þar munu Saga og Arnór etja... af kappi.

Við hvetjum lesendur til að senda okkur slúður, skúbb og fréttatilkynningar á vardhundarnir@gmail.com, en ef lesendur vilja halda nafnleynd er hægt að nýta sér síður á netinu á borð við þessa: http://www.sendanonymousemail.net/ 
|
  Það er farið að skýrast núna í hvaða stefnu frambjóðendur halda með kosningabaráttur sínar. Frambjóðendur til stjórna hafa flestir verið heldur rólegir og leyft undirfélögunum að fæða hrægamma félagslífsins, kjósendurna. Einn maður stendur þó sem kóngur í ríki sínu og deilir og drottnar í cösu þessa dagana, hann reyndar deilir eiginlega bara og það frekar miklu stöffi til samnemenda sinna. Björn Hjörvar virðist hafa rekið alla nýtísku framboðsmógúlana sem hann réði í byrjun skólaárs eftir að hann sá plakötin sín og bæklinginn. Hann henti hattinum og ekkert hefur spurst til hans í vikunni en varðhundar höfðu upp á honum og hafði hann lítið um málið að segja að svo stöddu. Björn Hjörvar virðist nú hafa stimplað allan þennan sálfræðihernað í kosninabaráttunni bull og hefur gripið til svonefndrar „Kanónu Kosningabarátta“ sem eru Beinharðir Peningar!

Þegar nemendur mættu í skólann í dag biðu þeirra bæklingar frá Birni Hjörvari, Arnóri Einars og þeir sem voru heppnir fengu bækling frá Sögu Úlfars þar sem ekki var til nóg fyrir alla (fyrirboði um það sem Framtíðin Sögu ber í skauti sér í kreppunni?). Þarna hefur Björn Hjörvar stimplað peningana sína allrækilega inn með því að gera meira en forsetakandídat en þetta var ekki búið. Í hádeginu gastu farið í cösu og þar sástu eiginlega bara ennþá fleiri bæklinga frá Birni en þegar þú náðir loks að synda í gegnum haf þeirra komstu að sjálfu sakramentinu. Hjá Birni gastu smakkað á yfir 50 nammitegundum, 70 drykkjarvörum, látið klæðskerasauma á þig föt eða fengið erótískt nudd inni í tækjakompunni í cösu. Yfir öllu þessu trónaði Björn Hjörvar og sönglaði nýtt slagorð sitt: „Ég get allt, því ég er ríkur eins kókómalt kappinn Páll Aðalsteinsson var í fyrra“.

Greinilegt er að ekkert er heilagt í þessum kosningum og öllum brögðum er beitt. Ljóst er að Björn kann að eyða peningum, en getur hann séð utan um þá verði hann kvestor? Tobba og Pétur eru í öngum sínum og voru staðin að því fyrr í dag að leita í öllum opnum skúffum og ísskápum á Framtíðarskrifstofunni að mótsvari sínu gegn Birni.

Við hvetjum lesendur til að senda okkur slúður, skúbb og fréttatilkynningar á vardhundarnir@gmail.com, en ef lesendur vilja halda nafnleynd er hægt að nýta sér síður á netinu á borð við þessa: http://www.sendanonymousemail.net/

 
|
   
|
Monday, March 30, 2009
 

Jæja, nú er fyrsti dagur kosningaviku að kvöldi kominn. Varðhundar voru á vappi í dag og tóku púlsinnn á nemendum. Það sem stóð upp úr í dag var kannski helst bæklingaleysi Forseta frambjóðendanna frekar en bæklingar inspectorskandídatanna en þeir voru þó ein af stórfréttum dagsins, enda rosalega lítið um dýrðir á þessum fyrsta degi kosningavikunnar.

Árni Freyr Snorrason fær plus í kladdann fyrir það að vera eini frambjóðandinn sem var búinn að dreifa bæklingum í allar stofur fyrir fyrsta tíma í morgun.


Forsíða

Forsíða Árna virkar fínt á mann þrátt fyrir súran Gamla Skóla í bakgrunn. Traustvekjandi staða, vel hnýttur bindishnútur en þó hálfsmeðjulegt bros. Árni er með fallegan tanngarð og Varðhundar söknuðu hans á myndinni.

Einkunn: A- (Engar ferskar pælingar en er fín á alla kanta þess utan)


Uppsetning

Þegar þú flettir í gegnum bæklinginn er ekkert sem í raun grípur augu þín, nema kannski ágætis mynd af Árna á 2.síðu. Dagatalið er illa staðsett og svolítið crowded þ.a. það fer fyrir ofan garð og neðan og stefnumálin eru illa uppsett og þessi græni áherslulitur, c’mon maður.

Einkunn: F


Meðmæli

Árni bryddar upp á nýjung og hefur stuðningsgreinar í stað hefbðundinna meðmæla (sem birtast þó á umdeildum stuðningsplakötum hans). Hann reynir að sannfæra okkur um að hann sé maðurinn sem Skólafélagið þarfnast með því að fá einhverja Skólafélags”spaða” til að sannfæra okkur um það. Ágætis hugmynd sem léleg uppsetning og biturleiki Ásbjargar ná þó nánast að eyðileggja.

Einkunn: B-


Frumleiki

Það er lítið sem kemur á óvart í þessum bæklingi nema þá kannski baksíðan sem er nokkuð fersk og skemmtileg. Allur bæklingurinn utan hennar fær falleinkunn í frumleika en baksíðan rétt dregur hana upp.

Einkunn: C



Halldór Kristján Þorsteinsson dreifði ekki bæklingum sínum fyrir fyrsta tíma í morgun heldur beið með það fram í 2.tíma. Klúður eða epísk kosningabrella? Enginn veit. Eitt er þó víst og það er það að hvort sem það var skipti það Skapta Jóns litlu sem engu máli hvort bæklingnum var dreift fyrir fyrsta eða annan tíma á mánudagsmorgni.



Forsíða

Ekkert við þessa forsíðu lofar góðu. Staðan á Halldóri er léleg, brosið ósannfærandi og fyrst hann ákvað nú að hafa Gamla Skóla í bakgrunn gat hann þó allavega gert það vel.

Einkunn: F


Uppsetning

Ef horft er framhjá forsíðunni er bæklingurinn mjög vel uppsettur. Straight forward og flottur. Stefnumálin eru vel uppsett og dagatalið og tjekklistinn eru mjög nett. Það eina sem dregur bæklinginn niður er að hafa öll meðmælin alveg eins uppsett í röð, verður þreytt.

Einkunn: A


Meðmæli

Spaðastuðullinn á meðmælum Halldórs er nokkuð hár og hann dreifir fólki vel. Hann nær einnig í annan af forsetaframbjóðendunum, Sögu Úlfarsdóttir. Valið á meðmælendum á lokasíðunni er þó stórfurðulegt, 3 busastelpur, Ívar Sævars og einhver útbrunnin Gettu Betur stjarna sem öllum er DMS um hvern hann styður.

Einkunn: B+


Frumleiki

Lítið er frumlegt í þessum bæklingi nema kannski uppsetning stefnumálanna og myndirnar af Halldóri fyrir ofan. Halldór nær líka þeim merka árangri að hafa 13 myndir af sér í bæklingnum, vel gert.

Einkunn: B-



Þar hafið þið það, álit Varðhundanna á áróðursbæklingum inspectorsframbjóðendanna í ár. Bæklingur Halldórs skoraði fleiri stig í heildina og vann því en það vegur mjög þungt að for- og baksíður Árna taka for- og baksíður í þurran analinn og hver veit nema skinkumellurnar í 3.bekk kjósi aðeins út frá fyrstu skynhrifum og nenni kannski ekki einu sinni að opna bæklingana.

 
|
Hvert er gjald lýðræðisins? Hvað vegur hvert atkvæði í gulli? Hversu langt fram á hengiflugið? Vaskir þjóðfélagsvinir og lýðræðisrýnar munu fylgjast grannt með kosningum nemendafélaganna í Menntaskólanum í Reykjavík. Þeir eru varðhundar réttlætisins. Varið ykkur!

ARCHIVES
03/01/2004 - 04/01/2004 / 04/01/2005 - 05/01/2005 / 03/01/2006 - 04/01/2006 / 03/01/2007 - 04/01/2007 / 02/01/2008 - 03/01/2008 / 03/01/2008 - 04/01/2008 / 03/01/2009 - 04/01/2009 / 04/01/2009 - 05/01/2009 / 02/01/2010 - 03/01/2010 / 03/01/2010 - 04/01/2010 / 03/01/2011 - 04/01/2011 /


Powered by Blogger