<$BlogRSDURL$>
Lýðræðisrýnar
Friday, April 08, 2005
  Fyrstu útgönguspár berast - Gunnar Hólmsteinn með yfirgnæfandi fylgi í 3.bekk: Úrslitin ráðast í 5. bekk - Fannar sígur fram úr Jóni Eðvaldi: Auðir gætu ráðið úrslitum - Fyrsti kvenkyns Ás spilafélagsins? Karlar klofnir í afstöðu sinni - Zéra Zkáldzkaparfélagzinz: Halla nær örugg um sigur.

Fyrstu útgönguspár hafa borist í hús. Samkvæmt þeim hefur Gunnar Hólmsteinn öruggt forskot á keppinaut sinn í þriðja bekk en fjórði bekkur virðist klofinn í afstöðu sinni. Það lítur því út fyrir að atkvæði fimmta bekkjar geti ráðið úrslitum. Enn er mjög jafnt á munum milli Fannars og Jóns Eðvalds um fylgi í forsetann. Þykir Fannar höfða til íhaldssamari kjósenda en Jón sækir fylgi sitt til róttækra og þeirra sem vilja sjá breytingar. Er því jafnvel ekki loku fyrir það skotið að óákveðnir kjósendur í fimmta bekk muni snúast á sveif með honum þegar í kjörklefa er komið.
Kvennaframboðið Slagur hefur sópað að sér atkvæðum kvenna í öllum bekkjardeildum en atkvæði karla virðast skiptast jafnt á milli hinna listanna og þá einnig eftir árgöngum.
Halla Oddný Magnúsdóttir virðist höfða til flestra kjósenda óháð aldri og kyni í embætti Zéra Zkáldzkaparfélagzinz. Er þá jafnvel talið að áhugaleysi kjósenda á embættinu sé henni í hag þar sem hún muni þá njóta góðs af íhaldssemi eldri nemenda. 
|
Hvert er gjald lýðræðisins? Hvað vegur hvert atkvæði í gulli? Hversu langt fram á hengiflugið? Vaskir þjóðfélagsvinir og lýðræðisrýnar munu fylgjast grannt með kosningum nemendafélaganna í Menntaskólanum í Reykjavík. Þeir eru varðhundar réttlætisins. Varið ykkur!

ARCHIVES
03/01/2004 - 04/01/2004 / 04/01/2005 - 05/01/2005 / 03/01/2006 - 04/01/2006 / 03/01/2007 - 04/01/2007 / 02/01/2008 - 03/01/2008 / 03/01/2008 - 04/01/2008 / 03/01/2009 - 04/01/2009 / 04/01/2009 - 05/01/2009 / 02/01/2010 - 03/01/2010 / 03/01/2010 - 04/01/2010 / 03/01/2011 - 04/01/2011 /


Powered by Blogger