<$BlogRSDURL$>
Lýðræðisrýnar
Wednesday, March 25, 2009
  Kæru nemendur.

Skólafundur Skólafélagsins fór fram í skólanum síðastliðinn mánudag eftir að kennslu lauk. Varðhundar voru að sjálfsögðu viðstaddir til að gæta þess að ekki væri traðkað á lýðræðinu og rétti nemenda innan skólans. Til að byrja með héldum gekk allt með felldu og allt leit út fyrir að fundurinn yrði átakalaus og myndi ganga rólega fyrir sig þá steig Halldór Kristján, inspectorsframbjóðandi og lýðræðisskrumari, fram og kvaddi sér hljóðs. Það sem fram fór eftir þetta er ekki fyrir viðkvæma og mæli ég með því að hjartveikir og pussur hætti að lesa nú þegar.

Eins og alþjóð veit hefur hið tveggja turna tal hafist. Inspectorskapphlaupinu hefur verið skotið af stað og keppendur eru aðeins tveir: Árni Freyr og Halldór Kristján. Undanfarin ár hafa inspectorskosningarnar verið harðsvíraðar og hárbeittar, nánast svívirðilegar á köflum. Í ár héldu varðhundar að öllu meiri ró yrði yfir slagnum af því hversu seint hann hófst. En sú er ekki raunin. Halldór Kristján reyndi nú síðastliðinn mánudag að púlla eitt lúalegasta kosningabragð síðari ára (að meðtöldum hugmyndakassa GEÁ og 5 mínútna langri „óháðri“ ræðu inspectors á 5.bekkjarfundi síðasta árs). Í fyrsta lagi þvingaði Halldór í gegn lagabreytingartillögu sem gerði það að verkum að einungis 5% félagsmanna Skólafélagsins þurfi að greiða atkvæði á fundi til að niðurstaða mála verði gild.

Þetta telja varðhundar að hafi verið ólöglegt þegar staðið var að því þar sem innan við 10% (þáverandi lágmark skv. Lögum) sátu fundinn.

Eftir að Halldóri hafði tekist að skerða traustar stoðir lýðræðis Menntaskólans svo svívirðilega hélt hann áfram. Næsta frumvarp sem hann lagði til var að quaestor scholaris yrði að verða 17 ára á kjörtímabili sínu. Við fyrstu sín er þetta ekki svo gallað frumvarp, þó það sé með öllu tilgangslaust enda engar ákveður um aldur quaestors í núverandi lögum, en við nánari athugun er augljóst hvað Halldóri gekk fyrir. Það er nefnilega svo að ef þessi lagabreyting yrði að veruleika mundu allir núverandi nemendur skólans mega gegna embætti quesastors... NEMA EINN! Það er hin tvö-ár-á-undan-í-skóla stelpa Björg Brjánsdóttir sem situr nú í fjórða bekk. Frumvarpið öskraði hreinlega: Björg Brjánsdóttir má ekki verða quaestor!

Hingað og ekki lengra, Halldór Kristján. Þetta var dropinn sem fyllti mælinn, meira að segja sauðirnir í 3.bekk sem höfðu jarmað með Halldóri allan tíman sáu að þetta gekk ekki og var hann stöðvaður á síðustu stundu. Það var eins gott að það náðist að stöðva hann því næstu tillögur sem hann hafði undir höndum hljómuðu eitthvað á þessa leið: Björg Brjáns má ekki bjóða sig fram til Collegu og Björg Brjáns má ekki bjóða sig fram til Scribu.

Það mætti því spyrja sig hvað gekk Halldóri til með því að ráðast gegn einni manneskju innan Menntaskólans á svo svívirðilegan hátt? Vitað var að Björg hyggðist bjóða sig fram sem collega en samkvæmt áreiðanlegum heimildum skipti hún um skoðun á síðastliðnum dögum og stefndi nú á quaestorinn þar sem viðbrögðin sem hún fékk við collegu-framboði sínu voru með eindæmum jákvæð. Vildi Halldór ekki hafa Árna-manneskju í sæti fjárhirðis? Trúir hann ekki að skósveinninn sinn Björn Hjörvar geti unnið? Talaði Björg einhvern tímann illa um < 3 Svanhvít!?

Enginn veit svörin við þessum spurningum en eitt er víst og það er að Björg hefur gífurleg ítök í þessum skóla og því gæti þetta útspil Halldórs reynst vera hans banabiti, eða hvað?

Við hvetjum lesendur til að senda okkur slúður, skúbb og fréttatilkynningar á vardhundarnir@gmail.com, en ef lesendur vilja halda nafnleynd er hægt að nýta sér síður á netinu á borð við þessa: http://www.sendanonymousemail.net/

 
|
Hvert er gjald lýðræðisins? Hvað vegur hvert atkvæði í gulli? Hversu langt fram á hengiflugið? Vaskir þjóðfélagsvinir og lýðræðisrýnar munu fylgjast grannt með kosningum nemendafélaganna í Menntaskólanum í Reykjavík. Þeir eru varðhundar réttlætisins. Varið ykkur!

ARCHIVES
03/01/2004 - 04/01/2004 / 04/01/2005 - 05/01/2005 / 03/01/2006 - 04/01/2006 / 03/01/2007 - 04/01/2007 / 02/01/2008 - 03/01/2008 / 03/01/2008 - 04/01/2008 / 03/01/2009 - 04/01/2009 / 04/01/2009 - 05/01/2009 / 02/01/2010 - 03/01/2010 / 03/01/2010 - 04/01/2010 / 03/01/2011 - 04/01/2011 /


Powered by Blogger